top of page

Bakverkir og meiðsli

Á mínum ferli hef ég gengið í gegn um allskonar meiðsli og verki, bæði hjá mér sjálfum og séð hjá fólki sem ég hef þjálfað. Þetta eru verkir sem gætu verið vegna of mikils álags, komið í kjölfar slyss, í kjölfar aðgerðar, brjóskloss o.s.frv. Ef þú ert að glíma við slíka verki og hefur jafnvel leitað til lækna, prófað mismunandi lyf, farið í sjúkraþjálfun og ekkert er að virka, þá gæti ég með lausn handa þér.

Ég hef á mínum 40 ára þjálfunarferli stytt leiðina milli sjúkraþjálfara og lækna yfir í hefðbundna styrktarþjálfun með eigin aðferðafræði. Þú getur komið til mín í greiningu og í framhaldinu vinnum við saman að því að leysa þín mál.

Eiríkur Jóhannsson
rafmagnstæknifræðingur og þríþrautarkappi

Ég kynntist Kjartani sem þjálfara þegar ég fékk slæmt brjósklos í æfingaferli fyrir minn fyrsta Ironman árið 2019. Greiningin var mikið áfall þar sem læknar sögðu mér að keppni á því áreynslustigi sem Ironman er, væri fjarlægur draumur.
 
Ég á keppnissögu minni í Ironman gríðarlegri þekkingu Kjartans á endurhæfingu,  uppbyggingu líkamans og þjálfun allt að þakka. Kjartan kom mér á fætur með óhefðbundnum æfingum, en hann gengur mun lengra í þróun æfinga en nokkur þjálfari á þessu sviði að mínu mati. Það varð algjör viðsnúningur á ótrúlega skömmum tíma á bata, framförum og líðan eftir að Kjartan tók mig að sér. Í raun eru þetta framfarir og bati sem læknar töldu ekki mögulegan í mínu tilfelli.
 
Kjartan á stóran þátt í þeim árangri sem ég hef náð í þríþraut en ég hef núna klárað tvo heila og fjóra hálfa Ironman og er hvergi nærri hættur æfingum eða keppni. Kjartan hefur fylgt mér í gegnum þau bakslög sem ég hef fengið á mínum ferli og kennt mér að missa aldrei trúna á að allt sé hægt.
_ART0777.jpg
_ART0857.jpg

Ruth Einarsdóttir
Framkvæmdarstjóri og golfari

Í eitt og hálft ár hef ég verið að kljást við tvöfalt brjósklos. Ég var búin að bryðja mikið af bólgueyðandi og verkjatöflun. Sjúkraþjálfun og ýmislegt annað hafði ekki verið að hjálpa mér. Mér var bent á Kjartan og hann tók strax á móti mér. Ég hef verið hjá honum í einkaþjálfun í þrjár vikur og verkir hafa farið úr 7 í 3. Taugaleiðni niður í fót hefur minnkað og styrkurinn að koma tilbaka. Kjartan er alveg einstakur í sinni nálgun í einkaþjálfun. Hann pælir mikið í þeim æfingum sem hann lætur mig gera. Hann prófar þær sjálfur til að vera viss um að álagið sé rétt. Ég sé nú loksins fram á að verða orðin góð þegar næsta golftímabil hefst þökk sé Kjartani.

Matthías Barðason

Ég hef verið virkur í leik og starfi í gegnum tíðina, unnið líkamlega erfiða vinnu og hugsað of lítið um að styrkja mig rétt á móti vinnuálaginu. Ég hef verið að glíma við bakverki í mörg ár og lendi í að fá brjósklos fyrst fyrir 15 árum síðan og var þá skorinn í bakinu. Ég varð þokkalega góður í nokkur ár en bakverkurinn byrjaði að taka sig upp nýtt aftur fyrir ári síðan. Ég var hættur að geta unnið og leikið útaf verkjum og var alveg rúmfastur um tíma með brjósklos. Konan mín þekkti til Kjartans og mældi með að byrja æfa undir hans leiðsögn. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun! Ég mæti í einkaþjálfun þrisvar sinnum í viku og hef gert það í rúmlega hálf ár. Allt er að komast í eðlilegt horf og ég er eiginlega orðinn alveg verkjalaus og klár í hvað sem er þökk sé KG.
_ART0804.jpg
bottom of page