
Um Kjartan
Ég heiti Kjartan Guðbrandsson og hef verið að þjálfa undanfarin 40 ár. Ég bý yfir mestu reynslu á Íslandi hvað það varðar og elska það sem ég er að gera. Á mínum ferli hef ég þjálfað og unnið með mjög ólíkum einstaklingum. Ég hef þjálfað unglinga, afreksfólk í íþróttum og allt þar á milli.
Íþróttir hafa alltaf verið stór hluti af minni persónu. Ég byrjaði ungur að æfa frjálsar, fótbolta, fimleika og júdó en fann mig svo í líkamsrækt snemma á unglingsárum og hef ekki stoppað síðan. Ég byrjaði að þjálfa 18 ára gamall og fór í kjölfarið að keppa í kraftasportinu. Ég á farsælan feril þar að baki með fjölmörgum íslandsmeistaratitlum, og eftir því sem ég best veit er ég sá eini á Íslandi sem hefur orðið íslandsmeistari í fitness, vaxtarrækt og kraftlyftingum.
Reynslan
40 ár í þjálfun
Það hefur rosalega margt breyst síðan ég byrjaði að leggja stund á líkamsrækt og þjálfun. Ég hef öðlast meiri þekkingu í öllu sem ég hef verið að gera, til dæmis hvað varðar líkamsbeitingu, hugarfar, næringu og aðhlynningu meiðsla.
Undanfarin ár hef ég siglt lengra inn í það að laga fólk sem glímir við meiðsli eða aðra verki. Með reynslunni hefur mér tekist að læra að lesa líkamann á stigi sem ég hefði aldrei trúað að væri hægt. Ég get greint og staðsett verki og útbúið þjálfunarprógram til að koma fólki í fyrra horf. Ég vinn þetta út frá eigin aðferðafræði með mjög góðum árangri. Þetta er hæfileiki sem ég átti ekki fyrir nokkrum árum síðan. Hann hefur fengið að vaxa og þróast með mér gegnum minn feril og er í dag mikilvægur partur af minni persónu.

