KG Fjarþjálfun
Ég hef alltaf lagt mikið upp úr því að bjóða ekki upp á annað en gæði í þeirri þjálfun sem ég hef tekið að mér, og hér áður fyrr hafði ég ákveðna fordóma gagnvart fjarþjálfun. Ég átti erfitt með að sjá hvernig ég gæti miðlað nægilega góðum upplýsingum til fólks. Í þjálfun skiptir höfuðmáli að fólk geri æfingar rétt til þess að fá sem mest út úr þjálfuninni án þess að meiðast.
Sem betur fer er þetta liðin tíð og ég sé að það er hægt að ná frábærum árangri í fjarþjálfun ef rétt er staðið að henni. Ég býð upp á fjarþjálfun í hæsta gæðaflokki. Við hittumst, kynnumst og förum gegnum greiningarferli og mælingar. Í framhaldinu færð þú prógram sem er tengt við snjallforrit. Þar inni eru myndbönd af æfingum sem þú framkvæmir.
Ég býð lika upp á að klæðskera prógrammið þitt með videóum af þér framkvæma þær æfingar sem við ég ætla þér. Ef það hentar þér þá senda mer ínu og við förum í málið.
Einnig er í boði að sleppa aðhaldi og greiningu en þá borgar þú einungis fyrir aðgang að prógraminu.





