top of page
Einkatímar
Það mikilvægasta í þessu öllu er að líða vel. Lífið er stutt ferðalag og við eigum að njóta þess. Ég set standardinn hátt í allri minni þjálfun og býð aðeins upp á vöru í hæsta gæðaflokki. Við ætlum að efla hugarfarið og gera þig sterkari á öllum sviðum, ekki bara þegar kemur að æfingum. Við setjum okkur markmið saman og ég mun koma þér þangað með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum sem eru sérsniðnar út frá þínu formi og karakter. Ég legg upp með að efla þig til að vera sjálfbær í hugsun og heilbrigðri eigingirni, þannig að þú getir tekið ákvarðanir sem eru bestar fyrir þig. Þeir sem skrá sig hér eða kaupa aðgang að einkatímum hér komast að öllu jöfnu beint inn án biðtíma.
bottom of page




